Fotbolti.net
07.08.14 - 15:04
Elvar Geir Magnússon

Adam Örn til Nordsjælland (Staðfest)

Adam Örn Arnarson.

Adam Örn Arnarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Örn Arnarson, 18 ára, hefur skrifað undir samning við FC Nordsjælland sem Ólafur Kristjánsson þjálfar. Adam er bakvörður sem leikið hefur með yngri landsliðum Íslands.

Adam var síðast hjá NEC Nijmegen í Hollandi en er uppalinn hjá Breiðabliki.
Frá þessu er greint á vefsíðunni bold.dk og haft er eftir Ólafi Kristjánssyni að Adam geti orðið hörkugóður varnarmaður.

„Hann er með flotta tækni, er kraftmikill og les leikinn vel. Við erum með þolinmæði og sjáum hann fyrir okkur sem leikmann fyrir framtíðina. Hann er fús til að læra og hefur tekið framförum síðustu ár,\" sagði Ólafur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.