Fotbolti.net
07.08.14 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Adeyemi til Cardiff (Staðfest)

Tom Adeyemi er kominn í Cardiff.

Tom Adeyemi er kominn í Cardiff.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City hefur gengið frá kaupum á Tom Adeyemi frá Birmingham City og er þessi 22 ára fyrrum miðjumaður Norwich löglegur fyrir opnunarleik Championship-deildarinnar. Cardiff mætir Blackburn í beinni á Stöð 2 Sport 2.
Adeyemi á að fylla skarð Jordan Mutch sem seldur var til QPR.

Cardiff féll úr ensku úrvalsdeildinni síðasta tímabil en íslenski landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson leikur með liðinu.

Knattspyrnustjórinn Ole Gunnar Solskjær segist í skýjunum með að hafa fengið Adeyemi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.