Fotbolti.net
07.08.14 - 16:30
Daníel Freyr Jónsson

Johan Djourou seldur til Hamburg (Staðfest)

Johan Djourou í baráttunni á HM.

Johan Djourou í baráttunni á HM.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Johann Djourou hefur klárað vistarskipti sín frá Arsenal til Hamburg og er hann formlega genginn í raðir þýska liðsins.
Djourou lék með Hamburg sem lánsmaður allt síðata tímabil og kom við sögu í 24 af 32 deildarleikjum liðsins.

Þessi 27 ára gamli miðvörður kom ungur að aldri til Arsenal og spilaði alls 86 leiki í ensku úrvalsdeildinni á þeim 10 árum sem hann var til mála hjá Lundúnarliðinu. Alls spilaði hann 144 leiki í öllum keppnum.

Djourou er fastamaður í landsliði Sviss og hjálpaði liðinu að komast í 16-liða úrslit Heimsmeistaramótsins í sumar.

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.