07.08.21 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birna Kristjánsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Birna Kristjánsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birna Kristjánsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur bætt markverðinum Birnu Kristjánsdóttur í leikmannahóp sinn.
Þessi reynslumikli markvörður hefur skrifað undir samning við Kópavogsfélagið sem gildir út yfirstandandi keppnistímabil.
Birna er uppalinn Bliki og hefur leikið 79 leiki fyrir Breiðablik. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir Blika árið 2003.
Birna hefur komið víða við á ferlinum og hefur meðal annars leikið fyrir Val, Stjörnuna og KR hérlendis. Hún hefur leikið einn A-landsleik fyrir Íslands hönd.
„Við bjóðum Birnu velkomna aftur heim," segir í tilkynningu Blika.
Birna kemur til með að vera varamarkvörður fyrir Telmu Ívarsdóttur. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir, sem hefur verið varamarkvörður liðsins í sumar, var lánuð í Augnablik í síðasta mánuði.
Breiðablik er í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Vals.