07.08.21 - 09:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þórdís Hrönn til Apollon (Staðfest)

Þórdís og Ingunn eru báðar farnar út í atvinnumennsku; Þórdís til Kýpur og Ingunn til Grikklands

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir Apollon, sem er félag á Kýpur. Þórdís kemur þangað frá Breiðabliki.
Fótbolti.net greindi frá því fyrir mánuði síðan að Þórdís væri á leið til Kýpur.
Þórdís gekk í raðir Breiðabliks frá KR eftir síðasta tímabil. Hún er 27 ára gömul og getur spilað bæði á kantinum sem og á miðjunni. Í sumar hefur hún komið við sögu í níu leikjum í deild og bikar, og skorað tvö mörk.
Þórdís hefur leikið með Breiðabliki, Þór/KA, Stjörnunni og KR í meistaraflokki á Íslandi. Hún hefur áður farið í atvinnumennsku þar sem hún var hjá Alta og Kristianstad í Svíþjóð.
Hún á að baki tvo A-landsliðsleiki og hefur skorað 23 mörk í 102 leikjum í efstu deild á Íslandi.
Þórdís fær treyju númer 19 hjá Apollon og er hún komin með leikheimild hjá félaginu.