Fotbolti.net
07.08.21 - 12:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„UEFA, hættið þessum skrípaleik"

Messi er á leið til PSG.

Messi er á leið til PSG.

Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain virðist vera að ganga frá samningi við argentínsku ofurstjörnuna Lionel Messi.
Það var greint frá því í vikunni að Messi væri á förum frá Barcelona eftir að hafa spilað allan sinn feril hjá félaginu.

Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum. Félagið hefur tekið margar slæmar ákvarðanir síðustu ár og er kórónuveirufaraldurinn búinn að ýta undir vandræðin. Útlitið er alls ekki gott hjá félaginu sem getur ekki skráð Messi sem leikmann félagsins út af öllu ruglinu sem er í gangi. Reglur La Liga leyfa Barcelona ekki að skrá Messi, þar sem launatölur félagsins eru svo himinháar.

Messi er núna að semja við PSG þar sem hann mun væntanlega fá ágætlega góð laun. Blaðamaðurinn Anthony Lopopolo setur spurningamerki við þessi skipti og fær mikil viðbrögð við því á samfélagsmiðlum.

„Hvernig getur PSG borgað Neymar 30 milljónir evra á tímabili, 60 milljónir evra fyrir Hakimi og 75 milljónir evra í laun fyrir Messi, Donnarumma, Wijnaldum og Ramos á sama ári og það er búist við því að félagið verði af 204 milljónum evra í tekjur? UEFA, hættið þessum skrípaleik," skrifar Lopopolo.

PSG hefur áður verið til rannsóknar í tengslum við Financial Fair Play reglur UEFA og spurning hvort það gerist aftur núna. Reglurnar voru settar á laggirnar fyrir nokkrum árum. Financial Fair Play reglurnar ganga út á að lið verði að halda fjárhag sínum innan ákveðinna marka ella verði þeim refsað

PSG er með ríka eigendur frá Katar og gera má ráð fyrir því að þeir leggi gríðarlega háar upphæðir inn í félagið. Hvort sem það stangast á við reglur eða ekki, þá virðist PSG alla vega komast upp með það.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.