Fotbolti.net
07.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Tvær tvennur er Árborg vann Hafnir

David Adam skoraði tvennu og er kominn með sjö mörk á tímabilinu

David Adam skoraði tvennu og er kominn með sjö mörk á tímabilinu

Canon

Mynd: Guðmundur Karl/Sunnlenska

Hafnir 2 - 5 Árborg
1-0 Bergsveinn Andri Halldórsson ('3 )
2-0 Samúel Skjöldur Ingibjargarson ('5 )
2-1 David Adam Dabrowski ('16 )
2-2 Andrés Karl Guðjónsson ('26 )
2-3 David Adam Dabrowski ('56 )
2-4 Jökull Hermannsson ('69 )
2-5 Jökull Hermannsson ('76 )
David Adam Dabrowski og Jökull Hermansson skoruðu báðir tvennu í 5-2 sigri Árborgar á Höfnum í 4. deild karla í gær.

Hafnir byrjuðu af krafti og komust í 2-0 á fyrstu fimm mínútunum. Útlitið var því ekki gott fyrir gestina sem náðu þó að svara fyrir sig áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður.

David minnkaði muninn á 16. mínútu og Andrés Karl Guðjónsson jafnaði metin tíu mínútum síðar.

Árborg gerði síðan út um leikinn á tuttugu mínútna kafla í síðari hálfleik. David skoraði sitt annað mark og Jökull bætti við tveimur mörkum á sjö mínútum.

Árborg hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og situr í þriðja sæti með 29 stig, fjórum stigum frá toppnum.

Hafnir eru á botninum með sjö stig og hafa tapað síðustu þremur leikjum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes17+6348
2Hamar17+5144
3Árborg17+3033
4Elliði17-323
5Vængir Júpiters17-722
6KFR17-1418
7Úlfarnir17-1216
8ÍH17-3614
9Álafoss17-2711
10Hafnir17-4510
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.