Fotbolti.net
06.08.26 - 21:39
Brynjar Ingi Erluson

Tómas Bent á bekknum í risatapi - Stórsigur hjá Kristian

Tómas Bent horfði á Benfica fara illa með liðsfélagana

Tómas Bent horfði á Benfica fara illa með liðsfélagana

Canon

Mynd: Hearts

Kristian Nökkvi Hlynsson og Twente eru með annan fótinn í umspili Sambandsdeildar Evrópu eftir 6-0 stórsigur á Dun. Streda frá Slóvakíu í kvöld.
Kristian Hlynsson byrjaði á varamannabekk Twente en kom inn á þegar hollenska liðið var komið í 5-0.

Twente vann risasigur og er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í umspilinu. Þar bíður annað hvort Dynamo Kiev eða Qarabag.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavik töpuðu 2-0 fyrir Lugano í Sviss. Alex Freyr Elísson var í byrjunarliði NSÍ.

Elías Rafn Ólafsson hélt þá hreinu í 2-0 útisigri Midtjylland á írska liðinu Bohemians. Elías varði tvö skot og fékk 7,8 í einkunn fyrir frammistöðuna.

Tómas Bent Magnússon sat allan tímann á varamannabekk Hearts sem fékk 6-1 skell gegn portúgalska stórliðinu Benfica í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Mörk Benfica dreifðust á nokkra leikmenn en á meðal markaskorara voru Jhon Duran, sem kom til félagsins á láni frá Al Nassr, og Gianluca Prestianni.

Prestianni komst í fréttirnar á síðustu leiktíð þegar hann setti treyjuna fyrir munninn og lét einhver orð falla í átt að Vini Jr, leikmanni Real Madrid. Í kjölfarið var tekin upp regla á HM í sumar sem bannaði leikmönnum að hylja munninn þegar þeir ræddu við mótherja.

Hearts er komið í nær ómögulega stöðu í einvíginu. Tapi liðið fer það niður í umspil Sambandsdeildarinnar.

Albert í níunni

Albert Guðmundsson var líflegur í sóknarleik Fiorentina sem gerði 1-1 jafntefli við Deportivo La Coruna í æfingaleik.

Albert átti meðal annars skalla rétt fram hjá markinu og lét mikið að sér kveða í sóknaraðgerðum liðsins.

Hann lék í treyju númer níu en ekki tíunni sem hann hefur vanist. Fiorentina hefur ákveðið að leggja treyju númer tíu til hliðar til heiðurs Giancarlo Antognoni sem lék með félaginu frá 1972 til 1987.
Kristian Nökkvi kom við sögu í stórsigri Twente

Kristian Nökkvi kom við sögu í stórsigri Twente

Canon

Mynd: EPA

Albert spilaði í treyju númer níu

Albert spilaði í treyju númer níu

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.