06.08.26 - 21:18
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Jafntefli í endurkomu Sierru

Björg skoraði jöfnunarmark Þróttara þegar tuttugu mínútur voru eftir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sierra sneri aftur á völlinn í kvöld

Stjarnan 1 - 1 Þróttur R.
1-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('49 )
1-1 Björg Gunnlaugsdóttir ('71 )
Lestu um leikinn
1-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('49 )
1-1 Björg Gunnlaugsdóttir ('71 )
Lestu um leikinn
Stjarnan og Þróttur skildu jöfn, 1-1, í 15. umferð Bestu deildar kvenna á Samsung-vellinum í kvöld.
Stjörnukonur voru lengi að mæta til leiks og hálfótrúlegt að Þróttur skyldi ekki ná forystunni á fyrstu tuttugu mínútunum.
Katie Cousins átti skot í stöng og Björg Gunnlaugsdóttir skalla að marki sem Bridgette Skiba varði vel.
Stjarnan stóð af sér storminn og fékk sitt fyrsta dauðafæri á 24. mínútu. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir kom boltanum á Murielle Tiernan sem var komin í dauðafæri en Mollee Swift sá við henni.
Heimakonur mættu af meiri krafti til síðari hálfleiks og komust yfir eftir aðeins fjórar mínútur.
Birna Jóhannsdóttir sendi boltann inn fyrir vörn Þróttar þar sem Fanney Lísa Jóhannesdóttir var mætt á ferðinni. Enginn náði að stöðva hana og hún þrumaði boltanum í fjærhornið.
Liðin skiptust á að komast í góðar stöður eftir markið en þegar um tuttugu mínútur voru eftir jafnaði Þróttur verðskuldað.
Mist Funadóttir sendi stórkostlegan bolta í sveig inn í teiginn þar sem Björg Gunnlaugsdóttir tók vel á móti honum og lagði hann niðri í hornið.
Sierra Marie Lelii lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en dustaði rykið af þeim fyrir leikinn í kvöld. Hún kom inn af bekknum undir lokin þegar Þróttarar freistuðu þess að sækja sigurmarkið.
Mikil spenna var á lokamínútunum en hvorugu liðinu tókst að knýja fram sigur. Lokatölur urðu því 1-1.
Stjarnan er áfram í þriðja sæti og nú með 23 stig. Þróttur situr í sjöunda sæti með 15 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 13 | +25 | 30 |
| 2 | Breiðablik | 13 | +24 | 30 |
| 3 | Stjarnan | 13 | +5 | 22 |
| 4 | ÍBV | 13 | -1 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 13 | -7 | 16 |
| 6 | Fram | 13 | -9 | 16 |
| 7 | Þróttur R. | 13 | -5 | 14 |
| 8 | Þór/KA | 13 | -7 | 12 |
| 9 | Víkingur R. | 13 | -12 | 11 |
| 10 | Valur | 13 | -13 | 10 |