07.08.26 - 06:00
Kári Snorrason
Í BEINNI 12:00 - Dregið í undanúrslit Gatorade bikars Fótbolta.net

Dregið á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Dregið verður í undanúrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar klukkan 12:00.
Drátturinn verður í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum Fótbolta.net.
Álftanes, Haukar, Kormákur/Hvöt og Selfoss verða í pottinum en liðin unnu sína leiki í 8-liða úrslitunum sem spiluð voru fyrr í vikunni.

Kormákur/Hvöt tók á móti KFA á Blönduósvelli og vann 2-1 sigur. Selfyssingar unnu fjögurra marka sigur á Ými og Haukar lögðu Reyni Sandgerði.
Óvæntustu úrslitin voru á Dalvíkurvelli þar sem 4. deildar lið Álftaness vann 5-1 sigur á Dalvík/Reyni. Álftanes er eina liðið sem kemur ekki úr 2. deild sem verður í pottinum á föstudag.
Liðin í pottinum:
Álftanes
Haukar
Kormákur/Hvöt
Selfoss