Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. september 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
16 ára fljótastur hjá Man Utd
Mynd: Getty Images
Ayodeji Sotona, 16 ára akademíuleikmaður Manchester United, er orðinn sneggsti leikmaður félagsins.

Mælingar voru í gangi á leikmönnum félagsins og náði Sotona næstum 37km hraða. Diogo Dalot var í öðru sæti og hljóp hann á 35km hraða.

Það hefur enginn leikmaður í hópi Man Utd mælst á meiri hraða en Sotona. Marcus Rashford, Daniel James og Tahith Chong hafa náð í kringum 36km hraða í fyrri mælingum.

Sotona þykir afar efnilegur og hefur verið líkt við Ryan Giggs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner