Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. september 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bandaríkin: Gunnhildur hafði betur í Íslendingaslagnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Utah Royals 1 - 0 Portland Thorns
1-0 Becky Sauerbrunn ('36)
Rautt spjald: Emily Sonnett, Portland ('77)

Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn er Portland Thorns tapaði fyrir Utah Royals í nótt.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir byrjaði á bekknum hjá Utah en kom inná á 73. mínútu og var eina skipting sigurliðsins. Skömmu eftir innkomu Gunnhildar fékk andstæðingur hennar, Emily Sonnett, rautt spjald og kláraði Utah því leikinn með ellefu gegn tíu.

Becky Sauerbrunn gerði eina mark leiksins á 36. mínútu og eru núna fimm stig á milli liðanna í toppbaráttunni.

Portland er með 36 stig á toppnum. Utah er með 31 stig og á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner