Fotbolti.net
07.09.19 - 19:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Raggi Sig: Aðstæðurnar voru frábærar

Auglýsing
Raggi Sig: Aðstæðurnar voru frábærar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Eftir að við skorum annað markið, þá var þetta minna stress. Við vorum klárlega með tök á þessu eiginlega allan tímann," sagði Ragnar Sigurðsson, varnarmaður Íslands, eftir 3-0 sigur á Moldóvu í undankeppni EM.
Kolbeinn Sigþórsson skoraði sitt fyrsta mark í mótsleik í þrjú ár í dag. Hans fyrsta mark síðan gegn Frakklandi á EM 2016.

„Ég er mjög glaður fyrir hans hönd. Þetta er frábært fyrir hann og okkur."

Það hefur rignt mikið í höfuðborginni í dag, en það stytti upp þegar leikurinn hófst.

„Aðstæðurnar voru frábærar. Það var vindur í fyrri hálfleik, en logn í seinni hálfleik. Völlurinn var blautur og við gátum spilað hraðan og flottan bolta."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.