07.09.20 - 12:01
Elvar Geir Magnússon
Wilson til Newcastle (Staðfest)

Callum Wilson.

Mynd: Getty Images

Callum Wilson.

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur samið við enska sóknarmanninn Callum Wilson til fjögurra ára.
Hann er keyptur frá Bournemouth á um 20 milljónir punda.
Þessi 28 ára leikmaður á fjóra landsleiki fyrir England en hann spilaði 184 leiki fyrir Bournemouth og skoraði 67 mörk.

Aston Villa hafði einnig áhuga á Wilson en hann hafði meiri áhuga á því að fara til Newcastle.
Wilson er þriðji leikmaðurinn sem Steve Bruce fær í sumar. Áður komu Jeff Hendrick og markvörðurinn Mark Gillespie til Newcastle.
„Newcastle er magnað félag með flotta sögu," segir Wilson en Bournemouth féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.