Fotbolti.net
07.10.14 - 10:37
Hafliði Breiðfjörð

Donni hættur hjá Val (Staðfest)

Maggi Gylfa og Donni eru báðir hættir hjá Val.

Maggi Gylfa og Donni eru báðir hættir hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur sendi frá sér tilkynningu í morgun þess efnis að Halldór Jón Sigurðsson, Donni, sé hættur störfum sem aðstoðarþjálfari liðsins.

Þetta gerist degi eftir að Valur tilkynnti að Magnús Gylfason sé hættur þjálfun liðsins en Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson hafa verið orðaðir við starfið þó ekkert sé staðfest enn.
,,Knattspyrnufélagið Valur og Halldór \"Donni\" Sigurðsson hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu að rifta samningi á milli aðila,\" sagði í tilkynningu Vals í morgun.

,,Donni hefur undanfarið árið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla auk þess að sjá um séræfingar á vegum félagsins við góðan orðstír. Valsmenn þakka Donna kærlega fyrir samstarfið og óska honum jafnframt velfarnaðar í störfum sínum í framtíðinni.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.