Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 07. október 2019 18:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ingvar Jónsson kallaður inn í stað Rúnars Alex
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Ingvar Jónsson hefur verið kallaður inn í leikmannahóp A-landsliðs karla.

Ingvar kemur inn í hópinn í stað hans Rúnars Alex Rúnarssonar. Ingvar hefur leikið 8 A-landsliðsleiki. Ingvar er markvörður Viborg FF í dönsku næstefstu deild.

Ísland mætir Frakklandi á föstudaginn og liði Andorra eftir viku í undankeppni fyrir EM2020.

Vitað var þegar hópurinn var valinn að Rúnar Alex gæti þurft að yfirgefa hópinn þar sem hann og kærasta hans eiga von á barni á næstu dögum.
Athugasemdir
banner