Fotbolti.net
07.11.13 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Shaun Derry tekur við Notts County (Staðfest)

Shaun Derry tekur við Notts County (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Shaun Derry hefur yfirgefið herbúðir QPR til að taka við sem knattspyrnustjóri hjá Notts County í ensku C-deildinni.

Derry hefur verið á láni hjá Millwall í vetur en hann verður nú spilandi knattspyrnustjóri hjá Notts þar sem hann hóf feril sinn.
,,Það var ekki hægt að ganga framhjá umsókn hans,\" sagði Ray Trew formaður QPR.

Derry spilaði tvö tímabil í ensku úrvalsdeildinni með QPR en liðið féll síðastliðið vor.

Hans bíður mikið verk hjá Notts County en liðið er á botninum í ensku C-deildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.