Fotbolti.net
07.11.15 - 00:07
Arnar Geir Halldórsson

Margrét Lára Viðarsdóttir í Val (Staðfest)

Margrét Lára spilar í Pepsi 2016

Margrét Lára spilar í Pepsi 2016

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðsfyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir er gengin til liðs við Pepsi deildarlið Vals.
Margrét Lára kemur til Vals frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad en hún hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2008.

Ásamt því að leika með Val í Pepsi deildinni mun Margrét Lára koma inn í þjálfarateymi liðsins en samningurinn er til tveggja ára.

Margrét á glæstan feril að baki og var meðal annars valin Íþróttamaður ársins árið 2007.

Hún hefur skorað 75 mörk í 102 landsleikjum og áður en hún hélt í atvinnumennsku drottnaði hún yfir efstu deildinni hér á landi en Margrét hefur skorað 198 mörk í 124 leikjum í deild og bikar hér á landi fyrir ÍBV og Val.

Valur endaði í 7.sæti Pepsi deildarinnar á síðustu leiktíð en á heimasíðu félagsins segir að endurkoma Margrétar Láru í Val sé skýrt merki um upprisu kvennaknattspyrnunnar í Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.