Cristiano Ronaldo virtist reiður þegar Maurizio Sarri tók hann af velli í 2-1 sigri Juventus á Lokomotiv Moskvu í Meistaradeildinni í gær.
Ronaldo var tekinn út af í stöðunni 1-1 á 82. mínútu. Juventus tókst að vinna leikinn 2-1 með Ronaldo á bekknum, en Douglas Costa skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Sarri, þjálfari Juventus, kenndi meiðslum um viðbrögð Ronaldo við skiptingunni.
„Ronaldo var reiður vegna þess að honum leið ekki vel, hann lenti í hnémeiðslum fyrir nokkrum dögum," sagði Sarri.
„Hann var stressaður vegna meiðslanna í fyrri hálfleik. Ég var hræddur um að hann myndi meiða sig og ég ákvað því að taka hann út af."
Sjá einnig:
Ramsey bað Ronaldo afsökunar á að taka markið
Not happy at all.pic.twitter.com/42QoPKmFkc
— TeamCRonaldo (@TeamCRonaldo) November 6, 2019
Athugasemdir