07.11.21 - 13:41
Hafliði Breiðfjörð
Dean Smith rekinn frá Aston Villa (Staðfest)

Dean Smith var rekinn í dag.

Mynd: Getty Images

Dean Smith var rekinn í dag.

Mynd: Getty Images
Aston Villa tilkynnti rétt í þessu að Dean Smith hafi verið rekinn úr stjórastólnum hjá félaginu. Aston Villa hefur spilað skelfilega í undanförnum leikjum en 1 - 0 tapið gegn Southampton á föstudagskvöldið var fimmti tapleikur liðsins í röð.
Villa vann síðast leik gegn Manchester United í lok september og er í 15. sætinu með aðeins 10 stig úr 11 leikjum en þá setti liðið met með því að vinna tíu leiki í röð í lok tímabilsins.

Dean Smith tók við Aston Villa liðinu fyrir þremur árum síðan, í október 2018. Undir hans stjórn komst liðið upp í ensku úrvalsdeildina á fyrsta leiktíðinni og setti met þegar það vann tíu leiki í röð í lok tímabilsins.
Tímabilið á eftir hélt liðið sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni og komst í úrslitaleik Caraboa bikarsins á Wembley þar sem þeir töpuðu naumlega 2-1 gegn Manchester City.
Á vef Aston Villa er honum þökkuð störfin og óskað alls hins besta í framtíðinni. ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver tekur við liðinu en sú vinna er nú hafin. Dean Smith er fimmti stjórinn sem er rekinn hjá félagi í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabilinu.

Aston Villa Football Club can confirm that the Club have parted company with Head Coach Dean Smith.
— Aston Villa (@AVFCOfficial) November 7, 2021
Heimild: Vefur Aston Villa