07.11.21 - 19:34
Brynjar Ingi Erluson
Klopp við BBC: Ég er ekki hvolpurinn þinn

Jürgen Klopp var ekki skemmt á hliðarlínunni

Mynd: Getty Images

Jürgen Klopp. knattspyrnustjóri Liverpool. ætlaði ekki að láta veiða sig í viðtali við BBC eftir 3-2 tapið gegn West Ham í kvöld en hann var spurður út í tæklingu Aaron Cresswell á Jordan Henderson.
Atvikið átti sér stað í byrjun leiksins er Liverpool var 1-0 undir eftir sjálfsmark Alisson.
Cresswell fór í tæklingu á Henderson og vann boltann en VAR skoðaði ativkið til að athuga með rautt spjald.
Niðurstaðan var að þetta var óhapp hjá Cresswell og fékk hann þvi ekki spjald en Klopp var spurður út atvikið eftir leik.
„Ég hef minnstar áhyggjur af því að sigurhrinunnni er lokið. Því mun alltaf ljúka, fyrr eða síðar. Það eru nokkrir hlutir sem gerðust í leiknum sem er erfitt að kyngja. Ef þú nýtir ekki færin þá fer þetta eftir ákvörðunum dómarans," sagði Klopp.
„Það er skondið að þú spyrjir að þessu. Ég veit ekki alveg hverju ég á að svara ef þú veist ekki hvað ég er að tala um. Fannst þér Alisson ekki hafa verið hindraður í fyrsta markinu? Er það ekki starf þitt að vera með skoðanir á þessu? Það er næs."
„Við skoðuðum þetta aftur. Alisson vill fara í boltann en Angelo Ogbonna fer í handlegginn á Alisson og þess vegna kýlir hann boltann í netið.
„Þetta væri brot í flestum löndum heimsins. Markvörðurinn verður að fá hjálp, annars hlaupa bara allir á markvörðinn því það er maðurinn sem verður að sjá til þess að fá boltann en hann á ekki möguleika því ef hann ýtir einhverjum þá er það víti."
Hann var svo spurður nánar út í atvikið með Cresswell og Henderson og vildi ekki taka þátt í þeim skrípaleik.
„Svo var annað atvik með Cresswell og Henderson," sagði Klopp áður en blaðamaður BBC Radio 5 Live spurði hann hvort það hafi verðskuldað rautt spjald.
„Guð minn góður. Ég er ekki hvolpurinn þinn. Ég vona að þú hafir sjálfur skoðun á þessu. Það er í fínasta lagi," sagði hann í lokin.