07.11.21 - 14:03
Hafliði Breiðfjörð
Shevchenko tekinn við Genoa (Staðfest)

Shevchenko fyrir leik gegn Íslandi á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Shevchenko fyrir leik gegn Íslandi á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítalska félagið genoa staðfesti í dag að Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko sé tekinn við sem aðalþjálfari liðsins. Hann gerir samning við félagið sem gildir fram í júní 2024 og á að hefja félagið til vegs og virðingar að nýju.
Davide Ballardini var rekinn í gærkvöld eftir 2 - 2 jafntefli gegn Empoli á föstudaginn. Genoa er við fallsvæðið en ráðningin á Shevchenko er hluti af endurreisn félagsins undir stjórn nýrra eiganda, bandaríska fyrirtækisins 777 Partners.
Þetta er fyrsta starf Úkraínumannsins með félagslið en hann þekkir vel til á Ítalíu sem leikmaður þar sem hann var hjá AC Milan í tvígang, fyrst 1999-2006 og svo aftur 2008-2009 á láni frá Chelsea. Hann vann gullbolta Evrópu árið 2004.
Hann lagði skóna á hilluna árið 2012 og lék síðasta árið með Dinamo Kiev í heimalandinu. Hann varð aðstoðarþjálfari úkraínska landsliðsins í hálft ár árið 2016 áður en hann tók við sem aðalþjálfari. Hann hætti með liðið í ágúst eftir að hafa stýrt því í 52 leikjum.

🔴🔵 Andriy #Shevchenko è il nuovo allenatore del Genoa. Benvenuto, mister!
— Genoa CFC (@GenoaCFC) November 7, 2021
🇺🇸🇬🇧 @jksheva7 is the new Genoa head coach.
🇺🇦 #Шевченко
📝 https://t.co/dYPIG2X5fp pic.twitter.com/oxYMb2kcLc