Fotbolti.net
07.11.26 - 11:11
Brynjar Ingi Erluson

Frimpong til Sádi-Arabíu?

Frimpong til Sádi-Arabíu?
Canon

Mynd: EPA

Hollenski bakvörðurinn Jeremie Frimpong er sagður íhuga að yfirgefa Liverpool á næsta ári.
Hinn 25 ára gamli Frimpong gekk til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen á síðasta ári.

Stuðningsmenn Liverpool voru spenntir fyrir komu hans eftir frábæran tíma hjá þýska félaginu, en honum hefur ekki tekist að fylgja þeirri frammistöðu eftir á Anfield.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn, en Frimpong hefur heldur ekki náð að sýna sitt rétta andlit í þeim leikjum sem hann hefur spilað.

Samkvæmt blaðamanninum Ismael Mahmoud gæti Frimpong verið á förum frá Liverpool. Sádi-arabíska félaginu Al Hilal hefur boðist að fá Hollendinginn til sín og er hann sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við félagið.

Ronald Koeman skildi Frimpong eftir heima fyrir heimsmeistaramótið í sumar og þá virðist hann heldur ekki vera í framtíðaráformum Xavi, sem tók við hollenska landsliðinu eftir mótið.

Frimpong er sem stendur á meiðslalistanum og verður ekki með Liverpool um helgina, en landsleikjahléið gefur honum tækifæri til að ná sér að fullu og koma sér aftur í leikform.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.