Fotbolti.net
07.11.26 - 09:36
Brynjar Ingi Erluson

JJ Gabriel: Draumurinn er að vinna Ballon d'Or

JJ Gabriel: Draumurinn er að vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

JJ Gabriel, leikmaður Manchester United, hefur staðfest að hann hafi valið Real Madrid fram yfir Barcelona og áframhaldandi veru hjá United, en þetta sagði hann í samtali við spænska blaðið Marca.
Þessi 16 ára gamli leikmaður er talinn einn sá efnilegasti á Englandi, en hefur enn ekki fengið tækifæri með aðalliði Manchester United og er orðinn þreyttur á biðinni.

Hann tilkynnti félaginu í síðasta mánuði að hann vildi láta afskrá sig og að hugur hans stæði til þess að halda annað.

Nokkur af stærstu félögum utan Englands hafa átt í viðræðum við föruneyti JJ Gabriel, en Real Madrid hafði að lokum betur í kapphlaupinu. Bayern München og Barcelona drógu sig úr baráttunni og þá var leikmaðurinn ekki nægilega sannfærður um verkefnið hjá PSG.

Gabriel hefur nú staðfest að Real Madrid verði næsti áfangastaður hans, en hann mun formlega ganga til liðs við félagið í janúar. Búið er að tjá öllum öðrum félögum um ákvörðun hans.

„Barcelona eða Real Madrid? Augljóslega vel ég Real Madrid,“ sagði Gabriel við Marca.

Hann sagði jafnframt að það væri draumur sinn að vinna hin virtu Ballon d'Or-verðlaun í framtíðinni.

Gabriel og föruneyti hans telja að framtíð hans sé best borgið hjá Madrídingum og að þar fái hann bestu tækifærin til að þroskast sem fótboltamaður og byggja upp feril sinn, þrátt fyrir að samkeppnin í sóknarlínu Real Madrid sé mun meiri en til dæmis hjá Manchester United.

Samkvæmt Marca átti Jude Bellingham stóran þátt í að sannfæra Gabriel um að ganga til liðs við Real Madrid, en Gabriel mun byrja feril sinn hjá félaginu með varaliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.