Fotbolti.net
07.11.26 - 10:29
Brynjar Ingi Erluson

Meiðsli Osimhen ekki jafn alvarleg og óttast var í fyrstu

Meiðsli Osimhen ekki jafn alvarleg og óttast var í fyrstu
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen verður frá keppni næstu þrjár vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné, en þetta staðfesti tyrkneska félagið Galatasaray í dag.
Osimhen meiddist í leik Galatasaray gegn Stuttgart í Meistaradeildinni þegar hnéð virtist gefa sig og var framherjinn sárkvalinn í kjölfarið.

Hann hefur verið einn besti leikmaður Galatasaray á tímabilinu og gegnt lykilhlutverki í liði sem stefnir á að tryggja sér sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Atvikið leit illa út, en Osimhen var á hlaupum með boltann þegar hnéð virtist skyndilega gefa sig. Í fyrstu var óttast að hann yrði lengi frá keppni, en eftir frekari rannsóknir bárust mun betri fréttir.

Framherjinn gekkst undir aðgerð sem heppnaðist vel og er nú áætlað að hann verði frá keppni í þrjár vikur. Hann mun því að minnsta kosti missa af leiknum gegn Aston Villa og mögulega einnig viðureigninni gegn AEK.

Galatasaray er með sex stig eftir fjóra leiki í Meistaradeildinni og situr í 18. sæti deildarkeppninnar.

Osimhen hefur verið í frábæru formi á tímabilinu og skorað tíu mörk í ellefu leikjum, auk þess að leggja upp þrjú mörk.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.