Fotbolti.net
06.11.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Coady leggur skóna á hilluna - Á leið til Barnsley?

Coady leggur skóna á hilluna - Á leið til Barnsley?
Canon

Mynd: EPA

Enski varnarmaðurinn Conor Coady er búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir 15 ár sem atvinnumaður í fótbolta.
Samningi Coady við Wrexham rift
TENGT EFNI

Samningi Coady við Wrexham rift

Coady er 33 ára gamall og gerði garðinn frægan með Wolves eftir að hafa alist upp hjá Liverpool. Coady var fyrirliði Úlfanna en yfirgaf félagið fyrir fjórum árum til að spila á láni hjá Everton áður en hann var seldur til Leicester.

Hann var algjör lykilmaður í uppgangi Wolves sem vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni og endaði tvisvar sinnum í sjöunda sæti deildarinnar, auk þess að komast 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Hann hefur verið án félags síðan samningi hans við Wrexham var rift í september og ætlar að demba sér í þjálfun. Coady, sem lék 10 landsleiki fyrir England, er núna orðaður við starf sem aðstoðarþjálfari hjá Barnsley. Hann er kominn langt á leið með að vinna sér inn UEFA A þjálfararéttindi.

Til gamans má geta að á sínum yngri árum þótti Coady gríðarlega efnilegur miðjumaður, en endaði á að eiga flottan feril sem miðvörður.

Hann starfar í dag sem fótboltasérfræðingur hjá breska ríkisútvarpinu, BBC.
Coady leggur skóna á hilluna - Á leið til Barnsley?
Canon

Mynd: EPA

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield14+1629
2Stockport14+1226
3Oxford United13+1126
4Luton14+624
5Plymouth14+223
6Reading14+1022
7Bradford13+222
8Cambridge United14021
9Sheff Wed13+820
10Leicester13+319
11Mansfield Town13+219
12MK Dons13+218
13Wycombe13-218
14Leyton Orient13+517
15Burton14-317
16Stevenage12+416
17Notts County12-114
18Wimbledon13-1213
19Blackpool12-412
20Doncaster Rovers13-812
21Wigan14-1111
22Peterboro13-1210
23Barnsley12-109
24Bromley13-209
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.