Fotbolti.net
07.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Verður að fylgja reglum til að nota Raphinha

Verður að fylgja reglum til að nota Raphinha
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Raphinha er algjör lykilmaður bæði fyrir brasilíska landsliðið og Spánarmeistara Barcelona, þar sem hann er fyrirliði.
Raphinha framlengir við Barcelona
TENGT EFNI

Raphinha framlengir við Barcelona

Hann var að skrifa undir nýjan samning við Barca á dögunum en stuðningsmenn félagsins eru smeykir um meiðslahættu vegna mikils leikjaálags. Síðustu tvö meiðsli sem Raphinha hefur orðið fyrir komu í æfingalandsleikjum með Brasilíu.

Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu hefur verið gagnrýndur fyrir að nota Raphinha að óþörfu og segist leikmaðurinn ætla að halda áfram að spila fyrir landsliðið en undir sérstökum skilyrðum.

„Ef Ancelotti vill nota mig, þá veit hann að hann þarf að passa upp á leikjaálagið. Hann veit hvað hann þarf að gera, við erum búnir að ræða þetta okkar á milli. Stuðningsmenn ættu ekki að hafa áhyggjur, það verður passað upp á álagið," segir Raphinha.
Verður að fylgja reglum til að nota Raphinha
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.