07.11.26 - 10:44
Brynjar Ingi Erluson
Gæti framlengt samning sinn við Liverpool í þessum mánuði

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool ætlar ekki að hlusta á tilboð frá Bayern München í ungstirnið Rio Ngumoha og er sannfært um að hægt verði að ganga frá nýjum samningi við hann á næstu vikum. Þetta kemur fram hjá TeamTalk.
Ngumoha er 18 ára gamall og talinn einn allra efnilegasti fótboltamaður Englands.
Hann gekk til liðs við Liverpool frá Chelsea fyrir tveimur árum og þreytti frumraun sína með aðalliðinu í byrjun árs 2025, þá aðeins 16 ára gamall.
Ngumoha sýndi góða takta undir stjórn Arne Slot á síðustu leiktíð og hefur fengið stærra hlutverk á þeirri yfirstandandi. Framtíð hans hjá félaginu var þó í nokkurri óvissu í sumar þegar Bayern München hafði samband við föruneyti hans.
Liverpool hafði hins vegar engan áhuga á að hefja viðræður og tók skýrt fram að leikmaðurinn væri ekki til sölu. Samkvæmt heimildum Christian Falk gæti Bayern þó gert aðra atlögu að honum eftir tímabilið.
Á sama tíma vinnur Liverpool að því að framlengja samning Englendingsins, en núgildandi samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð.
Viðræður hafa gengið vel og er talið að samkomulag gæti náðst strax í þessum mánuði.