06.11.26 - 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
England: Thierno Barry allt í öllu

Mynd: Everton

Mynd: Everton

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Everton
Everton 3 - 1 Coventry
0-1 Yann Gboho ('52 )
1-1 Thierno Barry ('56 )
2-1 Thierno Barry ('61 )
3-1 Kiernan Dewsbury-Hall ('81)
0-1 Yann Gboho ('52 )
1-1 Thierno Barry ('56 )
2-1 Thierno Barry ('61 )
3-1 Kiernan Dewsbury-Hall ('81)

TENGT EFNI
Byrjunarlið Everton og Coventry: Dibling fær tækifæri
Everton og Coventry áttust við í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og var staðan markalaus eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik, þar sem gestirnir frá Coventry fengu besta færið.
Lærlingar Frank Lampard héldu áfram að ógna og náðu forystunni snemma í síðari hálfleik þegar boltinn datt þægilega fyrir Yann Gboho, sem gerði virkilega vel að klára með marki úr erfiðu færi með mikið af andstæðingum í kringum sig.
Heimamenn voru fljótir að svara með jöfnunarmarki frá Thierno Barry sem skallaði fyrirgjöf frá Vitaliy Mykolenko í netið eftir góða sókn. Everton átti þrjár fyrirgjafir á innan við 20 sekúndna kafla sem endaði með marki frá Barry.
Fimm mínútum síðar skoraði Barry aftur, í þetta skiptið eftir stórkostlegan undirbúning frá Tyrique George sem fær þó líklega ekki skráða stoðsendingu eftir að varnarmaður Coventry virtist snerta boltann.
Coventry reyndi að svara fyrir sig en tókst ekki. Þess í stað innsiglaði Kiernan Dewsbury-Hall sigur Everton eftir frábæra stungusendingu frá Barry.
Meira var ekki skorað svo lokatölur urðu 3-1. Thierno Barry skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu.
Everton er með 16 stig eftir 10 umferðir og fer David Moyes þjálfari inn í landsleikjahléð með bros á vör.
Nýliðar Coventry eiga 9 stig og eru tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið sem stendur.
Barry er núna kominn með tíu mörk og þrjár stoðsendingar í 13 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.