06.11.26 - 21:55
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Brewster innsiglaði nauðsynlegan sigur

Mynd: Derby

Mynd: Derby

Mynd: Derby
Derby County 3 - 1 Bolton
0-1 Ruben Rodrigues ('42 )
1-1 Ryan Nyambe ('46 )
2-1 Jack Robinson ('49 )
3-1 Rhian Brewster ('94 )
0-1 Ruben Rodrigues ('42 )
1-1 Ryan Nyambe ('46 )
2-1 Jack Robinson ('49 )
3-1 Rhian Brewster ('94 )
Derby County tók á móti Bolton Wanderers í fyrsta leik helgarinnar í ensku Championship deildinni og voru gestirnir talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Ruben Rodrigues tókst að skora undir lok fyrri hálfleiks en heimamenn í liði Derby skiptu um gír beint eftir leikhlé.
Ryan Nyambe jafnaði strax á fyrstu mínútu og setti Jack Robinson boltann í netið skömmu síðar, svo heimamenn voru búnir að snúa leiknum við.
Bolton fékk færi til að jafna leikinn á ný sem fóru forgörðum svo Derby hélt 2-1 forystu allt þar til í uppbótartíma, þegar Rhian Brewster innsiglaði nauðsynlegan sigur.
Brewster, sem er uppalinn hjá Chelsea og Liverpool, skoraði þar með sitt fyrsta mark á deildartímabilinu eftir að hafa sett 7 mörk í 29 leikjum á síðustu leiktíð.
Derby er í næstneðsta sæti með 10 stig eftir 15 umferðir, fjórum stigum frá öruggu sæti. Bolton er í neðri hlutanum með 17 stig.