Fotbolti.net
06.11.26 - 21:10
Ívan Guðjón Baldursson

Júlíus og Ari misstu af Evrópu - Andrea og Vigdís á toppnum

Júlíus og Ari misstu af Evrópu - Andrea og Vigdís á toppnum
Canon

Mynd: Elfsborg

Það komu Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu og tókst Júlíusi Magnússyni ekki að koma í veg fyrir stórt tap hjá Elfsborg.
Júlíus lék allan leikinn á miðjunni og kom Ari Sigurpálsson inn af bekknum, en lokatölur urðu 4-1 á útivelli gegn toppliði Hammarby.

Elfsborg er búið að missa af Evrópusæti eftir þetta tap og siglir Íslendingaliðið lygnan sjó í fimmta sæti.

Í Hollandi var Helgi Fróði Ingason í byrjunarliði Helmond sem tapaði heimaleik gegn FC Volendam. Helgi lék í rúma klukkustund áður en honum var skipt af velli, lokatölur 2-3 eftir fjörugan slag.

Helmond er aðeins með 12 stig eftir 14 umferðir í næstefstu deild.

Tómas Johannessen var ekki í hóp hjá Jong AZ Alkmaar sem tapaði á heimavelli og er með 17 stig.

Í kvennaboltanum byrjuðu Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í sóknarlínu Anderlecht sem er í toppbaráttu í Belgíu og lagði Genk að velli fyrr í kvöld.

Anderlecht vermir toppsæti belgísku deildarinnar með 21 stig eftir 8 umferðir og hafa þær íslensku verið öflugar hingað til.

Glódís Perla Viggósdóttir var þá ekki í hóp er FC Bayern lagði Werder Bremen að velli í þýska boltanum. Bayern er með fullt hús stiga eftir 9 umferðir.

Að lokum voru María Catharína Ólafsdóttir Grós og Freyja Stefánsdóttir í byrjunarliði Djurgården sem gerði jafntefli við BK Häcken sem varði Svíþjóðarmeistaratitilinn á dögunum.

Thelma Karen Pálmadóttir var á sínum stað í byrjunarliði Häcken og lék allan leikinn.

Hammarby 4 - 1 Elfsborg

Helmond 2 - 3 Volendam

Jong AZ Alkmaar 1 - 3 Almere City

Genk 0 - 2 Anderlecht

Bayern 3 - 1 Werder Bremen

Djurgarden 1 - 1 Hacken
Júlíus og Ari misstu af Evrópu - Andrea og Vigdís á toppnum
Canon

Mynd: Anderlecht

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.