07.11.26 - 14:07
Brynjar Ingi Erluson
Ásdís og Emelía fóru á kostum - Selma byrjaði sinn fyrsta deildarleik í tvö ár

Ásdís Karen skoraði þrennu og lagði upp tvö

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emelía kom inn af bekknum, skoraði tvö og lagði upp tvö

Mynd: HB Köge

Selma Sól byrjaði í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag

Mynd: Rosenborg

Ásdís Karen Halldórsdóttir og Emelía Óskarsdóttir fóru á kostum í Evrópuboltanum í dag.
Byrjun AIK á leiknum var vægast sagt óvænt, en liðið lenti tveimur mörkum undir á fyrstu tuttugu mínútunum. Heimakonur vöknuðu hins vegar heldur betur til lífsins og sneru leiknum sér í vil með fjórum mörkum fyrir hálfleik.
Ásdís hóf endurkomuna með fyrsta marki AIK og liðsfélagar hennar bættu við þremur mörkum áður en flautað var til hlés.
Í síðari hálfleik fór Ásdís síðan hreinlega hamförum. Hún skoraði sitt annað mark á 51. mínútu og lagði upp sjötta mark liðsins aðeins átta mínútum síðar.
Hún var ekki hætt þar því hún lagði einnig upp sjöunda markið áður en hún fullkomnaði þrennuna og kórónaði stórkostlega frammistöðu sína níu mínútum fyrir leikslok.
Ásdís átti því sannkallaðan stórleik og kom að fimm mörkum AIK, sem situr í fjórða sæti deildarinnar með 43 stig þegar ein umferð er eftir.
Hún hefur nú skorað sjö mörk og lagt upp tvö síðan hún gekk til liðs við AIK í sumar.
Guðný Árnadóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad sem gerði 1-1 jafntefli við Eskilstuna. Guðný þurfti þó að yfirgefa völlinn eftir tæpan hálftíma.
Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn af bekknum hjá Eskilstuna, en Kristianstad hefur tryggt sér fimmta sæti deildarinnar með 38 stig fyrir lokaumferðina. Eskilstuna er í sjötta sæti með 33 stig.
Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Malmö sem gerði 1-1 jafntefli við Piteå og lék hún rúman klukkutíma. Malmö hefur þegar tryggt sér þriðja sæti deildarinnar.
Í Noregi vann Vålerenga öruggan 3-0 sigur á Álasundi. Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir voru í byrjunarliði Vålerenga, en Daníela Dögg Guðnadóttir lék með Álasundi.
Álasund hafnaði í öðru sæti deildarinnar með 50 stig og hefur tryggt sér sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta ári. Vålerenga endaði hins vegar í fjórða sæti með 44 stig.
Selma Sól Magnúsdóttir lék sinn fyrsta deildarleik í tvö ár þegar Rosenborg vann Bodö/Glimt 2-0.
Diljá Ýr Zomers var þá í liði Noregsmeistara Brann sem unnu Molde 2-0, en Sóley Edda Ingadóttir kom inn af bekknum hjá Molde.
Í dönsku úrvalsdeildinni var Hafrún Rakel Halldórsdóttir í liði Bröndby sem vann 2-1 sigur á Fortuna Hjörring. Bröndby situr í öðru sæti deildarinnar með 27 stig.
Emelía Óskarsdóttir heldur áfram að raða inn mörkunum fyrir Köge, sem gjörsigraði AGF 6-0.
Emelía kom inn af bekknum á 56. mínútu og lét heldur betur til sín taka. Hún skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í stórkostlegri innkomu.
Hún hefur nú skorað sjö deildarmörk á tímabilinu og Köge trónir á toppi deildarinnar með átta stiga forystu.
Eyrún Embla Hjartardóttir var að lokum í byrjunarliði varaliðs Häcken sem gerði 1-1 jafntefli við Husqvarna í sænsku B-deildinni. Häcken situr á botni deildarinnar með níu stig.