07.11.26 - 13:27
Brynjar Ingi Erluson
Mjög umdeild ákvörðun í Leeds - „Þetta er klárt rautt!“

Jayden Bogle steig aftan á ökklann á Tel

Mynd: EPA

Mathys Tel fór meiddur af velli

Leedsarar eru stálheppnir að vera ekki manni færri gegn Tottenham, en flautað hefur verið til hálfleiks á Elland Road þar sem staðan er enn markalaus.
Leikurinn hefur verið fjörugur, en það var afar umdeilt atvik undir lok fyrri hálfleiks sem vakti hvað mesta athygli.
Jayden Bogle, leikmaður Leeds, fór þá í ljóta tæklingu á franska sóknarmanninn Mathys Tel. Bogle steig harkalega aftan á ökkla Tel og náði einnig í hásinina.
Tel var sárþjáður eftir tæklinguna og tók það VAR-herbergið nokkra stund að fara yfir atvikið. Að lokum var John Brooks, dómara leiksins, tilkynnt að ekki væri ástæða til að grípa inn í og slapp Bogle meira að segja við gult spjald.
Ákvörðunin hefur vakið mikla athygli og erfitt er að átta sig á hvar línan liggur í slíkum atvikum. Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, fékk til að mynda rautt spjald fyrir tæklingu aftan á ökkla Micky van de Ven í síðustu umferð, á meðan Trey Nyoni slapp við spjald fyrir sambærilegt brot gegn Arsenal á dögunum.
Mike Dean, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, var ekki í nokkrum vafa um að Bogle hefði átt að fá rautt spjald.
„Þetta er klárt rautt spjald. Hann stígur aftan á hásinina og þetta er alls ekki góð tækling. Það kæmi mér verulega á óvart ef John Brooks yrði ekki sendur að skjánum,“ sagði Dean á meðan VAR-herbergið skoðaði atvikið.
Michael Dawson, sem var með Dean í þættinum Soccer Saturday, var sömuleiðis undrandi á niðurstöðunni.
„Ég trúi því ekki að Bogle hafi ekki fengið spjald,“ sagði Dawson.
Tel gat ekki haldið leik áfram og fór af velli en Dominic Solanke kom inn í hans stað.

Do you think Jayden Bogle deserved a red card for his challenge on Mathys Tel? ????
— RazedFootball (@RazedFootball) November 7, 2026
VAR decided to let him OFF the hook entirely. ???? https://t.co/KAgeX1oGTC

Mathys Tel fór meiddur af velli

Mynd: EPA