07.12.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Garðar Ingi Leifsson í KV (Staðfest)

Garðar Ingi Leifsson er kominn í búning KV.

Mynd: KV

Miðjumaðurinn og Hafnfirðingurinn Garðar Ingi Leifsson er genginn til liðs við 1. deildar lið KV.
Garðar er uppalinn í FH þeir eru því orðnir tveir Hafnfirðingarnir í liði KV, því Vignir Daníel Lúðvíksson gekk til liðs við Vesturbæinga í gærkvöldi.
Garðar Ingi Leifsson er 22 ára gamall og uppalinn hjá FH. Hann hóf meistaraflokksferil sinn í bikarleik með Víkingi Reykjavík árið 2010 og skoraði þá í sínum fyrsta leik.
Hann lék svo einn leik með ÍH sumarið 2011 en spilaði ekkert árið 2012. Síðasta sumar spilaði hann svo með ÍH í 3. deildinni, alls 13 leiki og skoraði eitt mark.
KV endaði í 2. sæti 2. deildar karla í sumar og leikur því í 1. deild í fyrsta sinn á komandi sumri.