07.12.13 - 11:27
Ívan Guðjón Baldursson
Rosler tekinn við Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan Athletic er búið að staðfesta ráðningu Uwe Rosler í knattspyrnustjórastöðuna hjá félaginu.
Rosler yfirgefur stjórastöðu sína hjá Brentford sem hann hafði gegnt í tvö ár. Hann tekur við af Owen Coyle sem fór á mánudaginn.

Rosler verður meðal áhorfenda á leik Wigan gegn Millwall í dag og verður tilkynntur opinberlega sem nýr knattspyrnustjóri á mánudaginn.
,,Uwe er einn besti ungi stjórinn í neðrideildunum og markmiðið hans er að stýra liði í efstu deild,\" sagði Dave Whelan, formaður Wigan.
,,Hann getur og mun ná frábærum árangri hér hjá Wigan Athletic. Hann er með sterkar skoðanir á hvernig hann vill að liðið spili og vill hjálpa til við að byggja félagið rétt upp fyrir framtíðina.\"

Heimild: Sky Sports