07.12.15 - 20:30
Arnar Geir Halldórsson
Ron Vlaar til AZ Alkmaar (Staðfest)

Vlaar og Kuyt eru báðir komnir heim til Hollands

Mynd: Getty Images

Vlaar og Kuyt eru báðir komnir heim til Hollands

Mynd: Getty Images
Hollenski varnarjaxlinn Ron Vlaar er genginn til liðs við hollenska úrvalsdeildarliðið AZ Alkmaar.
Vlaar hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Aston Villa síðasta sumar en hann hafnaði nýju samningstilboði Villa eftir að hafa misst af nær öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.
Þessi þrítugi miðvörður er nú kominn aftur til AZ en þar hófst atvinnumannaferill kappans.
Vlaar gerir samning út þetta tímabil við hollenska liðið sem er í 10.sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Þessi þrítugi miðvörður er nú kominn aftur til AZ en þar hófst atvinnumannaferill kappans.
Vlaar gerir samning út þetta tímabil við hollenska liðið sem er í 10.sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
