Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 07. desember 2021 17:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bergdís Fanney í KR (Staðfest)
Bergdís í leik með Val fyrri hluta tímabilsins í ár.
Bergdís í leik með Val fyrri hluta tímabilsins í ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergdís Fanney Einarsdóttir skrifaði í gær undir tveggja ára samning við KR og kemur hún frá Val.

Bergdís er uppalin hjá ÍA og á að baki 80 leiki í meistaraflokki og í þeim hefur hún skorað 37 mörk.

Bergdís lék með öllum yngri landsliðunum, samtals 31 leik og skoraði í þeim sjö mörk.

Bergdís var á láni frá Val seinni hluta síðasta tímabils og átti þátt í að liðið tryggði sér á ný sæti í efstu deild. Í sjö leikjum með KR skoraði hún þrjú mörk.

Bergdís er 21 árs gömul og hafði verið hjá Val frá árinu 2019.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Bergdís Fanney (2020)
Athugasemdir
banner
banner