07.12.23 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Eigandi Forest hefur áhuga á Lopetegui

Lopetegui

Mynd: EPA

Lopetegui

Mynd: EPA
Guardian segir frá því að Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest, hafi áhuga á því að ráða Julen Lopetegui ef hann tekur þá ákvörðun að láta Steve Cooper fara.
Cooper er sagður í heitu sæti en Marinakis á einnig gríska félagið Olympiakos og rak fyrr í vikunni Diego Martínez úr stjórastólnum þar.
Cooper er sagður í heitu sæti en Marinakis á einnig gríska félagið Olympiakos og rak fyrr í vikunni Diego Martínez úr stjórastólnum þar.

TENGT EFNI
Cooper fær einn leik í viðbót áður en ákvörðun verður tekin
Marinakis er ekki sáttur með gengi Forest eftir að hafa eytt yfir 100 milljónum punda í að styrkja leikmannahópinn í sumar.
Cooper fékk stuðningsyfirlýsingu með því að fá fimm ára samning eftir að Forest tapaði fimm leikjum í röð í október í fyrra.
Forest hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og fengið alls tólf mörk á sig í þessum tapleikjum. Aðeins sex stig aðskilja Cooper og hans menn frá fallsvæðinu.
Lopetegui er án starfs eftir að hafa yfirgefið Úlfana rétt fyrir tímabil. Forest ku einnig hafa áhuga á Oliver Glasner, stjóra Eintracht Frankfurt.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |