08.01.14 - 18:07
Elvar Geir Magnússon
Edin Beslija frá Þór í KF (Staðfest)

Beslija í leik með Þórsurum síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Óvæntar fréttir hafa borist af félagaskiptamarkaðnum hér heima. Miðjumaðurinn Edin Beslija sem lék með Þór í Pepsi-deildinni í fyrra er genginn í raðir KF, Knattspynufélags Fjallabyggðar, sem leikur í 2. deild.
KF, sem féll úr 1. deild í fyrra, tilkynnti þetta á Facebook síðu sinni í dag, en greint var frá þessu á nordursport.net.
„KF hefur náð samkomulagi við Edin Beslija, sem er 26 ára gamall sókndjarfur miðjumaður, um að spila með liðinu í sumar. Beslija kemur frá Bosníu/Hersegóvínu en hefur spilað á Íslandi undanfarin 4 ár, fyrstu 3 árin með Víking Ólafsvík en síðasta sumar með Þór Akureyri. Hann hefur spilað 93 leiki og skorað 19 mörk þessi fjögur tímabil hér á landi. Beslija mun koma til Fjallabyggðar í byrjun apríl.\"
Beslija var valinn í lið ársins í 1. deild 2012 þegar hann lék með Víkingi Ólafsvík sem komst upp í efstu deild.
Dragan Stojanovic, fyrrum þjálfari Völsungs, tók við þjálfun KF í haust af Lárusi Orra Sigurðssyni.