08.01.14 - 14:22
Magnús Már Einarsson
Magnus Wolff Eikrem til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur keypt norska miðjumanninn Magnus Wolff Eikrem frá Heerveneen fyrir óuppgefna upphæð.
Ole Gunnar Solskjær, nýráðinn stjóri Cardiff, þekkir Magnus gríðarlega vel.
Magnus lék undir hans stjórn í varaliði Manchester United og síðan hjá Molde í Noregi.

Síðastliðið sumar gekk Magnus síðan til liðs við Heerenveen þar sem hann var meðal annars liðsfélagi Alfreðs Finnbogasonar.
Magnus Wolff kíkti á leik Newcastle og Cardiff um síðustu helgi en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með nýju félagi gegn West Ham á laugardag.

Heimild: Sky