Fotbolti.net
08.01.14 - 19:00
Jóhann Óli Eiðsson

Myndband: Jermain Defoe til Toronto (Staðfest)?

Myndband: Jermain Defoe til Toronto (Staðfest)?
Canon

Mynd: Getty Images

Kanadíska MLS liðið Toronto FC gaf sterklega til kynna í dag að Jermain Defoe, framherji Tottenham, væri á leið til liðsins. Félagið hlóð upp á Youtube.com myndbandi sem sýnir eingöngu mann að frussa drykknum sínum, dagsetninguna 13. janúar 2014 og að þetta yrðu nokkuð stór kaup.
Brottför Defoe hefur verið eitt verst geymda leyndarmál knattspyrnuheimsins að undanförnu en Toronto sendi rapparann Drake á framherjann til að fá hann yfir hafið. Óljóst er þó hvort framherjinn mun leika áfram fram í mars með Lundúnaliðinu á láni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.