08.01.14 - 19:30
Jóhann Óli Eiðsson
Xabi Alonso framlengir við Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Twitter síða Real Madrid

Mynd: Twitter síða Real Madrid
Spænskir fjölmiðlar eru flestir að gera því í skóna að Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid, hafi framlengt samning sinn við liðið um tvö ár. Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum getur þriðja árið bæst við en fyrir samninginn á Alonso að fá litlar sex milljónir evra á tímabili.
Eldri samningur Alonso átti að renna út í lok þessa tímabils og voru lið víða um Evrópu farin að gera hosur sínar grænar fyrir kappanum. Í þeirra hópi voru m.a. Ítalíumeistarar Juventus, Evrópudeildarmeistarar Chelsea sem og hið gamla félag Alonso, Liverpool.
Óvíst var hvort Alonso yrði boðinn nýr samningur en hann hafði verið lengi meiddur. Þegar hann sneri aftur í liðið gjörbreyttist spilamennska þess og það sannfærði Carlo Ancelotti um mikilvægi hans.
Samningurinn verður líklega gerður opinber fyrir heimaleik liðsins gegn Osasuna á morgun.
Uppfært: Alonso og Real Madrid hafa bæði staðfest orðróminn á Twitter síðum sínum.