Fotbolti.net
08.01.16 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jermaine Jenas leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Jermaine Jenas var mikilvægur hlekkur í liði Tottenham undir lok síðasta áratugar.

Jermaine Jenas var mikilvægur hlekkur í liði Tottenham undir lok síðasta áratugar.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 32 ára gamli Jermaine Jenas er búinn að leggja takkaskóna á hilluna eftir 15 ára feril í enska boltanum.

Jenas var miðjumaður og þarf að hætta knattspyrnuiðkun vegna erfiðra hnémeiðsla, en hann er þegar kominn með starf sem knattspyrnusérfræðingur hjá BBC og Premier League TV.
Jenas lék sem miðjumaður og þótti mikið efni þegar hann var ungur, enda hefur hann leikið fyrir öll yngri landslið Englendinga og á auk þess 21 landsleik að baki fyrir A-landsliðið.

Jenas hefur leikið hátt upp í 300 úrvalsdeildarleiki fyrir Newcastle, Tottenham og Aston Villa en hann ólst upp hjá Nottingham Forest og lauk ferlinum sem leikmaður Queens Park Rangers.

„Ég er búinn að leggja skóna á hilluna. Ég gerði mitt besta til að ná mér af þessum meiðslum en því miður þá marka þau lok ferilsins,\" sagði Jenas við BBC Radio 4.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.