08.01.16 - 21:30
Arnar Geir Halldórsson
Osvaldo til Boca Juniors (Staðfest)

Mættur heim til Argentínu

Mynd: Boca Juniors

Mættur heim til Argentínu

Mynd: Boca Juniors
Pablo Osvaldo er genginn til liðs við Boca Juniors í Argentínu frá Porto.
Samningi hans við Porto var rift á dögunum en Osvaldo var á láni hjá Boca á síðustu leiktíð en hefur nú samið við félagið til eins og hálfs árs.
Osvaldo er fæddur og uppalinn í Argentínu en hélt ungur að árum til Ítalíu þar sem hann lék fyrir fjölmörg lið og gerðist einnig ítalskur ríkisborgari en hann á 14 A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
Á Ítalíu afrekaði hann að leika fyrir flest stærstu lið landsins, Fiorentina, Roma, Inter og Juventus svo einhver séu nefnd.
Þá prófaði Osvaldo einnig fyrir sér í enska boltanum en hann olli miklum vonbrigðum hjá Southampton og spilaði aðeins 13 deildarleiki fyrir Dýrlingana eftir að hafa kostað félagið 13 milljónir punda.
Nú er þessi 29 ára gamli framherji kominn heim til Argentínu þar sem hann mun meðal annars hitta fyrir argentísku stórstjörnuna Carlos Tevez.