Fotbolti.net
08.01.16 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Viðar Helgason leggur flaggið á hilluna (Staðfest)

Silfurrefurinn Viðar Helgason leggur flaggið á hilluna.

Silfurrefurinn Viðar Helgason leggur flaggið á hilluna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Helgason, einn ástsælasti aðstoðardómari landsins, mun taka kveðjuleik sinn í kvöld.

Viðar verður aðstoðardómari í leik KR og FH í Fótbolta.net mótinu í Fífunni klukkan 21:00.
Eftir leikinn mun Viðar leggja flaggið á hilluna eftir áralangan feril sem aðstoðardómari.

Þorvaldur Árnason dæmir leikinn í kvöld og hinn aðstoðardómarinn verður Jóhann Gunnar Guðmundsson.

Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sporttv.is en Tómas Meyer og Tryggvi Guðmundsson sjá um lýsingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.