Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. janúar 2021 19:30
Aksentije Milisic
Zlatan byrjaður að æfa á ný - Missir af leiknum gegn Torino
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, er byrjaður að æfa á ný eftir meiðsli aftan í læri.

Zlatan hefur spilað mjög vel á þessari leiktíð og gert tíu mörk í sex leikjum í Seríu A deildinni, þar sem AC Milan situr á toppnum.

Hann skoraði tvö mörk gegn Napoli í nóvember mánuði en þurfti síðan að fara af velli í þeim leik vegna meiðsla. Hann hefur verið frá síðan þá og nær ekki leiknum gegn Torino um helgina.

„Zlatan verður ekki klár í leikinn á morgun. Hann hefur verið að æfa og gert það vel. Hann er ekki orðinn 100% klár en það er stutt í það," sagði Pioli.

AC Milan tapaði sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Juventus í vikunni. Liðið er á toppnum með einu stigi meira heldur en grannar sínir í Inter Milan.
Athugasemdir
banner
banner