Fotbolti.net
08.02.13 - 20:12
Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Pétur Lýðsson í Breiðablik (Staðfest)

Guðjón Pétur er orðinn leikmaður Breiðabliks. Hér er hann ásamt Einari Kristjáni Jónssyni formanni knattspyrnudeildar félagsins..

Guðjón Pétur er orðinn leikmaður Breiðabliks. Hér er hann ásamt Einari Kristjáni Jónssyni formanni knattspyrnudeildar félagsins..

Canon

Mynd: Breiðablik

Guðjón Pétur Lýðsson er genginn í raðir Breiðabliks frá Val en þetta staðfestir Atli Sigurðarson framkvæmdastjóri Breiðabliks á Facebook síðu sinni í kvöld.
Guðjón Pétur komst að samkomulagi við Val í fyrrakvöld um að rifta samningi sínum við félagið.

Hann er 25 ára og hefur leikið lykilhlutverk með Val síðustu tvö ár en þá gekk hann í raðir félagsins frá Haukum.

Hann á að baki 123 leiki síðan hann hóf að leika í meistaraflokki sumarið 2006. Þá var hann leikmaður Hauka en hann hefur einnig leikið með Stjörnunni, Álftanes og Breiðablik.

Hann lék með Breiðablik sumarið 2007 en aðeins einn leik í Landsbankadeildinni það sumar.

Guðjón Pétur er þriðji leikmaðurinn sem Breiðablik fær í vetur. Áður kom landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson frá FH og framherjinn Ellert Hreinsson úr Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.