08.02.14 - 15:23
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds lánar Luke Varney til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hægri kantmaðurinn Luke Varney er búinn að skrifa undir þriggja mánaða lánssamning við Blackburn Rovers í umspilsbaráttu Championship deildarinnar.
Varney er 31 árs gamall og hefur mikla reynslu í enskri knattspyrnu þar sem Blackburn er níunda liðið sem Varney mun spila fyrir.

Varney hefur leikið í Úrvalsdeildinni og nokkrum neðri deildum Englands og skoraði til að mynda í sínum fyrsta úrvalsdeildarleik fyrir Blackpool.
Varney er á bekknum hjá Blackburn í leik liðsins gegn Middlesbrough í dag. Þar er staðan markalaus eftir rétt rúmar 20 mínútur.
,,Hann er frábær viðbót við liðið. Það er mjög gott að fá hann til okkar þar sem hann eykur möguleika okkar í sókn,\" sagði Gary Bowyer, stjóri Blackburn.

Heimild: BBC