Fotbolti.net
08.02.14 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Lippi fær Diamanti til liðs við Guangzhou (Staðfest)

Diamanti skoraði 7 mörk í 28 leikjum fyrir West Ham

Diamanti skoraði 7 mörk í 28 leikjum fyrir West Ham

Canon

Mynd: Getty Images

Alessandro Diamanti, leikmaður Bologna, er á leið til Gunagzhou Evergrande í kínversku deildinni þar sem hinn ítalski Marcello Lippi er við stjórnvölinn.

Guangzhou hefur verið orðað við ýmsa leikmenn úr ítölsku deildinni og er Emil Hallfreðsson, miðjumaður Verona, einn þeirra sem hefur verið orðaður við brottför til Kína.
Lippi er búinn að vera á höttunum eftir Diamanti í nokkurn tíma og hafa félögin loks komist að samkomulagi.

Diamanti mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið og segist spenntur fyrir þessu nýja ævintýri.

,,Ég er ánægður að geta hafið nýtt ævintýri með fjölskyldunni,\" sagði Diamanti.

,,Ég vil þakka öllum hjá Bologna og sérstaklega borginni sjálfri. Mér hefur liðið eins og ég sé mikilvægur jafnt innan sem utan vallar.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.