Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 08. febrúar 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðjón Máni áfram í Fjarðabyggð (Staðfest)
Guðjón Máni Magnússon.
Guðjón Máni Magnússon.
Mynd: Fjarðabyggð
Fjarðabyggð hefur fengið Guðjón Mána Magnússon í sínar raðir, en hann spilaði með liðinu síðasta sumar á láni frá Breiðabliki.

Guðjón Máni er 21 árs kantmaður. Hann spilaði alls 22 leiki með Fjarðabyggð síðasta sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.

Árið 2018 spilaði Guðjón Máni 17 leiki með Augnablik og skoraði í þeim fjögur mörk.

„Velkominn aftur í Fjarðabyggð Guðjón Máni," segir í tilkynningu Fjarðabyggðar sem hafnaði í níunda sæti 2. deildar karla á síðasta tímabili.

Fjarðabyggð samdi á dögunum við markvörðinn Milos Peric um að spila áfram með félaginu.


Athugasemdir
banner
banner